
Lofsamleg umfjöllun um Hof í Parametric Architecture
8.10.2026
Hof Skúla Mogensen í Hvammsvík var nýlega til umfjöllunar í Parametric Architecture en bygging Hofs var í höndum Landriss. Í greininni er hönnun byggingarinnar lofuð. Fjallað er sérstaklega um táknmyndirnar, fljótandi og opið þakið sem myndar maltneskan kross og býður upp á leik ljóss og skugga. Viðargólfið myndar latneskan kross og hringurinn í miðjunni opið eldstæði. Hofið þykir falla vel að landslaginu og hugmyndin um að hafa það berskjaldað fyrir veðri og vindum hafa heppnast vel og vera snjöll tilvísun í forn hof.